Garðyrkjudeild Hveragerðisbæjar hefur nú gert lítinn garð með blómum og trjám í kringum bekk sem gefinn var á síðasta ári til minningar um Steinunni Sveinsdóttur á Varmá. Gefendurnir voru börn Steinunnar. Það er vel við hæfi að bekknum skuli hafa verið fundinn staður efst á jarðhitamelnum svokallaða með góðu útsýni til Hamarsins og að Varmárbæjunum en þar gekk Steinunn ávallt um á leið sinni til vinnu.
Það von bæjaryfirvalda að þarna muni gróður mynda gott skjól fyrir  þá sem njóta munu bekkjarins til framtíðar.
Börnum Steinunnar og fjölskyldum þeirra er þökkuð hugulsemi í garð íbúa Hveragerðisbæjar.

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri 

Hér er svo eldri grein um Steinunni og bekkinn sem birtist í Krummanum.

Facebook ummæli