Meistaraflokkur kvenna í Hamri hélt lítið lokahóf fyrir leikmenn á laugardag. Stelpurnar gerðu sér glaðan dag og veittar voru viðurkenningar fyrir síðasta keppnistímabil.

Eftirfarandi leikmenn hlutu viðurkenningar:
Besti leikmaður 2020 var Karen Inga Bergsdóttir
Efnilegasti leikmaður 2020 var Brynhildur Sif Viktorsdóttir
Besti félaginn 2020 voru Dagný Rún Gísladóttir og Íris Sverrisdóttir
Mestu framfarir 2020 var María Björg Gunnarsdóttir
Markahæst 2020 var Íris Sverrisdóttir
Hrefna Ósk Jónsdóttir og Sara Hammer Ólafsdóttir fengu viðurkenningu fyrir ástundun og ómetanlega eljusemi fyrir félagið.

Karen Inga Bergsdóttir var valin besti leikmaður 2020

Facebook ummæli