Nú rétt í þessu var 4. flokkur kvenna úr Hamri að tryggja sér sæti í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitil í 8-manna bolta. Stelpurnar unnu FH 2-1 í háspennu leik í Kaplakrika og enduðu riðlakeppnina í efsta sæti riðilsins!

Frábær árangur hjá stelpunum sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér í fótboltanum! Nú tekur við helgarferð til Akureyrar hjá stelpunum þar sem úrslitakeppninn verður spiluð. 
ÁFRAM HAMAR!!!

Facebook ummæli