Þessar duglegu stelpur í Hveragerði Karítas, Heiðdís og Ísabella, sem eru bara sjö og fimm ára tóku sig til og söfnuðu pening til styrktar Seyðfirðingum. Eftir að sjá og heyra fréttir af aurskriðunum á Seyðisfirði og að fólkið þar fengi ekki að vera heima hjá sér á jólunum eða ættu hreinlega ekkert hús lengur, vildu þær hjálpa til. Þær perluðu fallegt jólaskraut úr yfir 24.000 perlum og var látið vita af þessum gjörningi þeirra á Hvergerðingasíðunni á Facebook. Fólk tók heldur betur við sér og vildi kaupa af þeim skrautið enda hugurinn fallegur og málefnið gott. Hægt var að velja á milli jólasveina, snjókorna, hreindýra o.fl á 500 kr stykkið. Björgunarsveitin Ísólfur fékk því hvorki meira né minna en 214.000 krónur inn á reikninginn sinn á aðfangadag, sem á eftir að koma sér virkilega vel eftir atburði síðustu daga.




Facebook ummæli