Minningarsjóður Mikaels Rúnars ætlar að standa fyrir B&B (Búbblur&Bjór) skemmtihlaupi laugardaginn 20.júní kl. 16.00.
Hlaupaleiðin er Hamarshringurinn í Hveragerði sem er 5 km. löng, ljómandi skemmtileg leið.
Rásmark og endastöð verða í Lystigarðinum við Fossflöt. 
Ekki verður tímataka í hlaupinu enda er skemmtanagildið aðal takmarkið.

Þátttökugjald er 2000 kr. og einnig er tekið við frjálsum framlögum.

Allt þátttökugjald rennur óskipt í minningarsjóð Mikaels Rúnars.
Við viljum alls ekki að hlauparar verði fyrir vökvatapi og því munum við væta kverkarnar á leiðinni og einnig við endastöðina, en þar munum við skála fyrir lífinu.

Endilega takið daginn frá og fáið sem flesta til að taka þátt í þessu með okkur
Skráningu lýkur fimmtudaginn 18. júní og hægt er að skrá sig hér.

Minningarsjóður Mikaels Rúnars

Facebook ummæli