Hér eru Hamarsstrákarnir Ragnar Ingi, Tobias, Óliver og Ívar Dagur.

Dagana 23-25 júlí fór fram SelfossCamp2020. Það var 3. flokkur Selfoss/Hamar/Ægir/KFR og FH. Þetta voru æfingabúðir fyrir bæði kynin. Gist var og borðað á Hótel Selfoss og var dagskráin mjög vegleg. Það var fyrirlestur, fótboltaæfingar,hópefli, keppt í fótbolta,farið á kajak,paintball,draugasetrið,disco, sund. Gestaþjálfararnir Freyr Alexandersson og Jón Þór Hauksson mættu og voru með æfingu.
Geggjaðir dagar og vel heppnað og verður vonandi árlegt og jafnvel stærra.

Mynd og skrif: Knattspyrnudeild Hamars

Facebook ummæli