Sæbjörg Erla Gunnarsdóttir keppti á unglingameistaramóti Íslands á Sauðárkróki sem fór fram í lok júní sl. Hún keppti m.a. í 4 x 100m boðhlaupi í flokki 14 ára ásamt liðsfélögum sínum í UMF Selfoss. Eftir æsispennandi hlaup komu þær fyrstar í mark og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn verðskuldað.

Myndir af Facebook: Margrét Karlsdóttir

Facebook ummæli