Gönguleiðin inn Reykjadal opnaði sunnudaginn 31. maí, hvítasunnudag, eftir lokun undanfarandi vikna.

Lokunartíminn hefur verið nýttur til endurbóta á gönguleiðinni en jafnframt hefur verið sett upp ný brú yfir Hengladalaá sem leysir af hólmi gömlu staurabrúna sem komin var  tími á. Brúin er smíðuð af Límtré á Flúðum og er hin veglegasta eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Göngustígurinn hefur tekið nokkrum breytingum og hefur hann nú verið færður frá hverunum í hlíðinni í dalnum en þar hafði skapast mikið hættuástand sem bregðast varð við.   Brúin sem lögð hafði verið yfir hverinn hefur verið fjarlægð.
Mikilvægt er að göngumenn taki tillit til aðstæðna, muni að verið er að fara um svæði þar sem hverir geta skapað hættu og verið hættulegir á mörgum stöðum. Ávallt skal fylgja merktum gönguleiðum.

Við baðstaðinn eru gestir beðnir um að ganga snyrtilega um og taka með sér sundföt og handklæði þegar svæðið er yfirgefið sem og annað rusl.   Engin salerni eða ruslafötur eru við gönguleiðina eða baðstaðinn enda er gert ráð fyrir að það sem kemur í dalinn fari allt þaðan aftur.  Vert er  líka að minna á reglur útgefnar af sóttvarnalækni vegna Covid og að almenn skynsemi sé höfð í fyrirrúmi sem og ábendingar um fjarlægðir milli manna.  Enn og aftur er gott að muna að ekki er heimilt að tjalda í Reykjadal.

Áfram verður unnið að endurbótum á gönguleiðinni á vegum starfshóps um uppbyggingu í Reykjadal.  Jafnframt er rétt að geta þess að landvörður á vegum Umhverfisstofnunar verður að störfum í Reykjadal í sumar gestum til halds og traust og ekki síður til leiðbeiningar um almenna umgengni.

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri

Facebook ummæli