Rekstur á rafskútum hefur nú hafist í Hveragerði en 40 rafskútum hefur verið komið fyrir í bæjarfélaginu. Eru þær á vegum HOPP sem einnig rekur rafskútuleigu í Reykjavík. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri og Jóhanna M. Hjartardóttir, menningar- og frístundafulltrúi voru fyrstar til að fara prufuferð um bæjarfélagið og voru þær himinlifandi með ferðina og töldu engan vafa á því að þessi ferðamáti myndi nýtast mörgum í bæjarfélaginu, bæði íbúum og gestum bæjarins. 

Hopp ehf er alíslenskt fyrirtæki sem býður upp á þjónustu þar sem hægt er að leigja rafskútur innan ákveðins þjónustusvæðis. Notendur aflæsa rafskútunum með appi og geta síðan keyrt um á þeim gegn vægu gjaldi. Þegar ferðinni er lokið er hægt að leggja rafskútunni hvar sem er innan þjónustusvæðis. Þjónustusvæðið þekur allt Hveragerði og einnig verður hægt að fara á rafskútunum upp í Hamarshöll og inn að Árhólum (bílastæði við Reykjadal).

Appið er fáanlegt bæði fyrir Android og iPhone og er mjög auðvelt í uppsetningu. Rafskúturnar eru með hámarkshraða upp á 25km/klst og komast hátt í 35km á einni hleðslu.

Líkt og í Reykjavík mun Hopp í Hveragerði sjá til þess að þjónustan gagnist heimamönnum fyrst og fremst. Markmiðið er að bjóða einstaklingum upp á umhverfisvænan, ódýran og handhægan ferðamáta til þess að komast leiðar sinnar á svæðinu. Það mun kosta 100 kr. að aflæsa rafskútunum og svo 30 kr. hver mínúta í leigu þar á eftir. 5 mínútna ferð mun því  kosta 250kr. Einnig er hægt að setja rafskútuna í „pásu“ og kostar þá mínútan aðeins 20 kr. (Sjá nánari upplýsingar í Hopp-appinu).

Forsvarsmenn HOPP vilja biðja notendur þjónustunnar um að fara varlega og fylgja umferðarlögum. Einnig er mælt eindregið með því að fólk noti hjálma á meðan hoppað er um götur bæjarins. Í appinu eru nákvæmar leiðbeiningar og notendaskilmálar um hvernig á að nota þjónustuna og hvar er leyfilegt að hoppa. Við uppsetningu á appinu eru notendum kennt hvernig á að leggja rafskútunum að ferð lokinni þannig að þær verði ekki í vegi fyrir öðrum vegfarendur.

Sigurgeir Skafti Flosason sér um rekstur á rafskútunum hér í Hveragerði og að hans sögn munu nýir notendur sem sækja appið fá fyrstu tvær ferðirnar sínar ókeypis, fyrst um sinn. Það er von bæjaryfirvalda og  HOPP að þjónusta verði kærkomin viðbót við litríka og skemmtilega bæjarlífið hérna í Hveragerði.

Frekari upplýsingar veitir Sigurgeir Skafti, fyrir hönd Hopp á Suðurlandinu, í síma 846-7713 eða með netfanginu sudurland@hopp.bike.

Hopp á Suðurlandi er hér á Facebook.

Sigurgeir Skafti, Aldís og Jóhanna við Lystigarðinn í Hveragerði

Facebook ummæli