Ólympíudagurinn verður haldinn hátíðlegur í Hveragerði 23. júní í Hveragerði í Lystigarðinum. Dagskráin er skipulögð í samvinnu við ÍSÍ og HSK og er öllum börnum á grunnskólaaldri boðið að taka þátt. Allir krakkar sem eru á ævintýranámskeiði og í vinnuskóla verða þátttakendur en einnig geta önnur börn skráð sig og tekið þátt. Boðið er uppá fjölbreyttar stöðvar þar sem krakkarnir skemmta sér í þrautum, leikjum og öðruvísi íþróttum. Sjá myndir 

Dagskráin í Lystigarðinum

Fyrir hádegi frá kl. 10 – 12 mæta krakkar í 5. bekk og eldri.

Eftir hádegi frá kl. 14 – 16 mæta krakkar sem eru að fara í 1. bekk – 4. bekk.

Það þarf að skrá krakka sem eru ekki á ævintýranámskeiði eða í vinnuskóla HÉR

Á hverju ári er haldið upp á Alþjóðlega Ólympíudaginn þann 23. júní út um allan heim. Þessi viðburður er haldinn í tilefni af því að 23. júní árið 1894 var Alþjóðaólympíunefndin (IOC) stofnuð. Alþjóðlegi Ólympíudagurinn er orðinn einn af lykilviðburðum Alþjóðaólympíunefndarinnar. Heildarfjöldi þátttakenda hefur verið um fjórar milljónir og hafa um 150 þjóðir tekið þátt.

Facebook ummæli