Margrét Guangbing Hu var fulltrúi Hamars í B-flokki á Íslandsmótinu í badminton sem fram fór um helgina. Mótinu hafið verið frestað um nokkrar vikur vegna Covid-19 og var það haldið í TBR í Reykjavík. Hægt að fylgjast með öllum leikjum beint á youtube að þessu sinni þar sem fjöldatakmörkun áhorfenda var enn í gildi og grímuskylda í húsinu. Margrét tapaði seinni lotunni naumlega en leikar fóru 21-8 og 21-19 fyrir Höllu Stellu Sveinbjörnsdóttur úr Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, en báðar eiga þær sæti í unglingalandsliðshópi BSÍ.

Halla Stella og Margrét. Mynd: BSÍ

Facebook ummæli