Hamarsmenn halda áfram að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi leiktímabil en félagið hefur nú gengið frá samningi við Jakub Madeij. Jakub sem er 21s árs gamall er fæddur í Póllandi.  Hann spilaði þar upp alla yngri flokka en hefur síðastliðin 2 ár leikið í Þýskalandi með Cemie-Volley við góðan orðstýr.Jakub er 181 cm á hæð og gríðarlega sterkur varnarlega. Hann langaði að koma til Íslands til að upplifa eitthvað nýtt og er hann frábær viðbót við ört stækkandi leikmannahóp félagsins en bæði stjórn og leikmenn ætla sér stóra hluti næsta vetur.
Hamar mun tefla fram þremur liðum í meistaraflokki í blaki á komandi leiktíð. Tveimur karlaliðum og einu kvennaliði.

Jakub Madeij. Mynd: heimasíða Cemie-Volley.

Facebook ummæli