Á jólafundi menningar-, íþrótta- og frístundanefndar var ákveðið að efna til jólaskreytingakeppni á meðal bæjarbúa. Viðurkenningar verða veittar fyrir mest og best skreyttu íbúðarhúsin. Dómnefnd tilkynnir vinningshafa þann 18. desember. Einnig fá íbúar að tilnefna á vef Hveragerðisbæjar það hús sem þeim finnst best skreytt. Það hús sem fær flestar tilnefningar fær vinsældarverðlaun.

Nú er tilvalið að bæta á skreytingarnar og jólaljósin áður en dómnefndin fer á stjá í næstu viku. En það er ljóst að þau eiga erfitt starf yfir höndum því mikið er lagt í jólaskreytingar í ár.

Svara jólaskreytingakönnun hér.

Njótið ljósanna og hátíðarinnar

Gleðileg jól !

Facebook ummæli