Það eru auðvitað margir að gera fínt fyrir jólin og á morgun föstudag verður farið í hreinsunaraðgerðir í Hveragerði. Í gær sendi Aldís Hafsteinsdóttir Hvergerðingum eftirfarandi skilaboð:
Hér er orðsending til þeirra sem eiga alls konar undarlegt dót eins og til dæmis ryðgaðan olíutank og gamlar númerslausar rútur sem dagað hafa uppi á lóðum bæjarins, bílastæðum eða á götum. Ef ykkur er annt um þessa muni þá er rétt að gæta að þeim eigi síðar en núna því að á föstudaginn uppúr hádegi verður þessu ekið í burtu. Það er EKKI heimilt að flytja þessa hluti á önnur svæði í eigu Hveragerðisbæjar, svo það sé sagt strax.

Facebook ummæli