Það hafa orðið breytingar hjá bæjarfulltrúum B-listans í Hveragerði. Garðar Rúnar Árnason hefur óskað eftir ótímabundnu leyfi frá setu í bæjarstjórn og hefur Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir tekið sæti Garðars á meðan á leyfinu stendur. Jóhanna verður sömuleiðis aðalmaður á Ársfundi SASS og aðalmaður á aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Snorri Þorvaldsson tekur því við af Jóhönnu sem fyrsti varamaður B-listans.

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Snorri Þorvaldsson, fyrsti varamaður B-ilstans í Hveragerði.

Facebook ummæli