Karlalið Hamars í blaki hefur styrkt leikmannahópinn fyrir komandi vetur og undirritað samning við Tomek Leik frá KPS Gietrzwald í Póllandi. Leik er ætlað að fylla skarð Radoslaw Rybak, þjálfara liðsins, en hann gengdi stóru hlutverki innan sem utan vallar á síðustu leiktíð. Hann mun einbeita sér að þjálfun liðsins í vetur og bindur félagið miklar vonir við Leik bæði í vörn og sókn.

Leik er 26 ára og hefur alla tíð spilað í Póllandi. Hann byrjaði að spila blak af alvöru í framhaldsskóla og hefur verið sívaxandi sem leikmaður og verður áhugavert að sjá hann reyna sig í Mizuno deildinni í vetur.

Facebook ummæli