Eldri hjón úr Hveragerði urðu fyrir töluverðu fjárhags- og tilfinningalegu tjóni þegar brotist var inn í gömlu hlöðuna við Garðyrkjuskólann nýlega. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum voru unnar miklar skemmdir bæði á húsnæðinu sjálfu sem og á munum sem voru þar í geymslu. Í hlöðunni geymdu hjónin m.a hjólhýsi sitt og var því hreinlega rústað ásamt öllum innanstokksmunum og fylgihlutum.

Ef einhver hefur upplýsingar sem varða þetta mál, er viðkomandi beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444-2000 eða sudurland@logreglan.is.

Facebook ummæli