Veitur hyggjast bæta við þriðja varmaskiptinum í varmaskiptastöðinni í Hveragerði til að mæta aukinni þörf á heitu vatni vegna mikillar uppbyggingar í bænum. Þannig náum við að gera rekstur hitaveitunnar öruggari fyrir þá íbúa og fyrirtæki sem tengd eru við tvöfalda kerfið, sérstaklega þegar hvað kaldast er yfir veturinn.

Af þessum sökum verður lokað fyrir heitt vatn hjá viðskiptavinum í Hveragerði (tvöfalda kerfið) fimmtudaginn 20. maí frá kl. 09:00-17:00.

Þrátt fyrir að langtíma veðurspá geri ráð fyrir mildu veðri þennan dag þá bendum við ykkur á að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur. Þannig má halda varma í híbýlum.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á þeim óþægindum er þetta kann að skapa.

Við biðjumst velvirðingar á óhjákvæmilegum óþægindum. Nánari upplýsingar hér á https://www.veitur.is/bilanir_og_vidgerdir.

Í kuldatíð mælum við með að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna

Facebook ummæli