Úrvalsdeildarlið Hamars í Mizunodeild karla í blaki er með fullt hús stiga eftir sigur á Íslandsmeisturum KA á Akureyri á miðvikudagskvöld.
Hamarsmenn unni fyrsta leik sinn gegn Þrótti frá Neskaupsstað fyrsta leik KA var frestað vegna kórónuveirunnar.  Leikurinn var því fyrsti leikur liðsins á Íslandsmótinu en KA leit vel út í ofurbikar Blaksambandsins um miðjan mánuðinn. 

Það var því útlit fyrir æsispennandi leik á Akureyri og fyrsta hrina leiksins olli engum vonbrigðum. KA hafði nauma forystu lengst af en Hamar jafnaði um miðja hrinu. Þeir skoruðu svo síðustu tvö stigin og unnu hrinuna 23-25.
Hamar byrjaði aðra hrinu betur og juku forustuna eftir því sem leið á hrinuna sem vannst örugglega, 17-25. 
Þriðja hrinan hófst líkt og önnur hrinan og hafði Hamar þægilegt forskot þangað til undir lokin. KA átti átti þá frábæra endurkomu en Hamar vann að lokum 22-25. 
Hamarsmenn eru nú á toppi deildarinnar með tvo 3-0 sigra úr tveimur leikjum.
Jakub Madej var stigahæstur í liði Hamars með 15 stig en stigahæstur í liði KA var Miguel Mateo með 10 stig.

Næsti leikur Hamars verður á heimavelli gegn Álftanesi þann 14. október. Á fyrsta heimaleiknum voru áhorfendur bannaðir svo við hvetjum Hvergerðinga og aðra Sunnlendinga til að koma og sjá blak á toppmælikvarða. 

Á meðfylgjandi mynd má sjá Jakub Madej, stigahæsta leikmann Hamars, skora eitt af stigum sínum gegn Þrótti í fyrsta leik.
Mynd: Guðmundur Erlingsson

Facebook ummæli