Seinni leikur undanúrslitanna í Mizunodeild karla í blaki fór fram í gærkvöldi. HK tók á móti KA í Fagralundi eftir að hafa tapað 3-1 á Akureyri á sunnudaginn var. Hamar fékk aftur á móti Vestra í heimsókn en Hamarsmenn voru yfir í einvíginu eftir 3-1 útisigur í Torfsnesi.

Hamarsmenn voru lengi að hitna og náðu Vestramenn góðri forustu í fyrstu hrinu. Hamarsmenn klóruðu þó í bakkann og Vestri vann að lokum  nauman sigur 25 – 22. Eftir það var mikil barátta Vestra til lítils en Hamar vann næstu 3 hrinur örugglega 25 -17, 25-11 og 25-18 og leikinn þar með 3-1 og einvígið 2-0.  

Í Fagralundi þróuðust leikar hins vegar þannig að KA náði þægilegri 2-0 forystu. HK klóraði í bakkann og vann þriðju hrinuna naumlega 25-23. Fjórða hrina var svo gríðarlega spennandi en fór að lokum svo að KA vann hana 25-23 og leikinn þar með 3-1.

Það verða því KA og Hamar sem mætast í úrslitum og fer fyrsti leikur einvígisins fram í Hveragerði á sunnudag en vinna þarf 2 leiki til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hveragerði í gærkvöldi. Ljósmyndari er Guðmundur Erlingsson.

Facebook ummæli