Hamar enn með fullt hús stiga eftir 3-1 sigur á Aftureldingu.

Hamarsmenn tóku í dag á móti Aftureldingu í 4. leik liðsins  i Mizunodeild karla í blaki.

Fyrir leikinn hafði Hamar unnið alla þrjá leiki sína 3-0 og voru á toppi deildarinnar ásamt HK með fullt hús stiga og enga tapaða hrinu. Afturelding hafði leiki 2 leiki og unnið annan og tapað hinum 3-0.

Hamarsmenn byrjuðu vel og leit út fyrir auðveldan 3-0 sigur í dag. Fyrsta hrinan vannst auðveldlega 25-13 og önnur hrinan 25-17. Þá vaknaði lið aftureldingar til lífsins og unnu þeir þriðju hrinu nokkuð örugglega 25-23. Þó litlu hafi munað á liðunum í lok hrinunnar þá var Afturelding með tök á henni allan tímann en Hamar klóraði í bakkann í lokin. Fjórða og síðasta hrina var nokkuð jöfn þó heimamenn hefðu frumkvæðið allan tímann. Að lokum vann hamar hrinuna 25-20 og þar með leikinn 3-1 og er enn með fullt hús stiga. HK situr þó eitt á toppnum með jafn mörg stig en betra hrinuhlutfall þar sem HK hefur unnið alla leiki sína 3-0.
Maður leiksins var Jakub Madeij, kantsmassari Hamars.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Mizunolið Hamars annar vegar og hinsvegar Jakub Madeij, mann leiksins,  að smassa á móti Þrótti í upphafi leiktímabils.

Jakub Madeij var valinn maður leiksins.
Mynd: Blakdeild Hamars.
Mizunolið Hamars.
Mynd: Blakdeild Hamars

Facebook ummæli