Hamarsmenn tóku í gær á móti KA í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í blaki. KA menn byrjuðu fyrstu hrinuna af krafti og virtust ætla að gera Hamarsmönnum erfitt fyrir. Um miðja hrinu vöknuðu Hamarsmenn til lífsins og eftir það sáu KA menn ekki til sólar. Heimamenn unnu allar hrinurnar örugglega 25-18, 25-18 og 25-17 og geta því tryggt sér Íslandameistaratitilinn á Akureyri á miðvikudaginn.
Vinna þarf tvo leiki til að verða Íslandsmeistari. Ef KA vinnur á heimavelli á miðvikudag verður hreinn úrslitaleikur í Hveragerði á föstudagskvöld.
Meðfylgjandi mynd er af Hamri að fagna stigi gegn KA í dag.

Facebook ummæli