Hamarsmenn náðu betri árangri en flest íþróttafélög í sóttvarnarhlénu en ákvarðanir Blaksambands Íslands (BLÍ) um framhald deildakeppninnar tryggja Hamri deildameistaratitilinn fyrir keppnistímabilið 2021.

Ákveðið var að ekki verði reynt að koma leikjum sem frestað var í sóttvarnarpásu fyrir á þeim leikdögum sem eftir eru tímabilsins. Forusta Hamars er slík að ekkert lið getur náð þeim að stigum miðað við þá leiki sem eru á tímabilinu og Hamarsmenn eru því handhafar bæði deildarmeistara og bikarmeistaratitils á þessu keppnistímabili.

Sjá nánar hér á síðu Blakfrétta.

Facebook ummæli