Lengsti og erfiðasti vetur á minni starfsævi er lokið. Vetur kvíða, vetur álags, vetur áhyggna, vetur andvöku en einnig vetur sigurs.  Sigurs öldrunarþjónustunnar yfir Covid 19 veirunni. Allt það frábæra starfsfólk öldrunarþjónustu landsins, Grundarheimilanna þar á meðal, lagði á sig feikn mikið og fórnaði sínu hversdagslega lífi til að geta sinnt þeim sem hjá okkur búa. Voru meira og minna í sjálfskipaðri sóttkví síðastliðið ár. Og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Einnig er ég þakklátur því mikla æðruleysi sem heimilisfólkið sýndi í vetur. Auðvitað áttu margir þeirra erfitt og ekki síður aðstandendur þeirra. En með þrautseigju, góðu skipulagi og öllu þessu frábæra starfsfólki tókst okkur að komast í gegnum þessar hörmungar og getum borið höfuðið hátt. Þá sýndu aðstandendur þessum erfiðu aðstæðum skilning og nú er gaman að sjá hversu margir heimsækja sína nánustu. Takmarkanir á heimsóknum á Grundarheimilin eru í lágmarki og hverfa alveg á næstunni.

Framundan er sumar og sól. Hlýja, notalegheit, heimsóknir, lífsgleði, ferðir út í bæ, ferðir á kaffihús, sólbekkjaseta í görðunum okkar og svo mætti lengi telja. Ekki förum við til útlanda á næstunni, í það minnsta ekki fyrri part sumars. Njótum íslenska sumarsins saman og gerum eitthvað skemmtilegt. Bæði í vinnunni og í sumarfríinu langþráða. Að vakna snemma á morgnana, eins og í morgun, og sjá daginn verða til, fuglana vakna og vita og hlakka til þess að þessi dagur verði fallegur og góður. Þvílík tilfinning.

Njótum lífsins saman í sumar 😊

Kveðja og gleðilegt sumar,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna

Facebook ummæli