Umhverfisnefnd Hveragerðisbæjar hefur valið þá garða sem viðurkenningu hljóta árið 2020 sem fegurstu garðar bæjarfélagsins. Vegna sérstakra aðstæðna í samfélaginu var ekki hefðbundin verðlaunaafhending heldur afhentu formaður umhverfisnefndar, garðyrkjufulltrúi og bæjarstjórai garðeigendum viðurkenningar í hverjum garði fyrir sig. Garðarnir munu svo verða opnir almenningi til skoðunar, venju samkvæmt, næsta sumar.


Eigendur Bláskóga 9, Þorsteinn Guðmundson og Hrói Leví Eco hljóta verðlaun fyrir sérstaklega vel heppnaða endurnýjun á gömlum garði í elsta bæjarhluta Hveragerðisbæjar. Eins og víða er þessum slóðum er garðurinn mjög stór og hefur hann þjónað ýmsum tilgangi í gegnum tíðina en hafði farið í nokkra órækt á síðari árum. Gömul tré sem felld voru hafa verið nýtt afar hugvitsamlega til dæmis með því að búa til drumba sem aðskilja og hækka upp beðin frá grasinu, einnig hafa greinar fallinna trjáa verið nýttar sem uppbinding fyrir nýju trén á skemmtilegan og náttúrulegan hátt. Annað sem féll til í garðinum svo sem grjót var einnig nýtt á mjög skemmtilegan hátt, en úr varð sérstaklega skemmtilegur og hlýlegur garður.  Gróðurvalið í garðinum er fjölbreytt og er flott sambland af gömlum og nýjum trjám og runnum, ásamt fjölæringum inná milli.

Eigendur Valsheiðar 6, Ingibjörg Sverrisdóttir og Óttar Baldursson, hljóta verðlaun fyrir einstaklega fallegan garð sem þrátt fyrir ungan aldur er orðinn fallega gróinn. Umhirða planta er einstaklega góð og flæðið á milli stíga, palla og beða kemur skemmtilega út í bogalínum sem brýtur garðinn upp á spennandi hátt. Garðurinn hefur uppá margt að bjóða og er hver krókur og kimi nýttur, hvort sem það er fyrir beð, göngustíg, pall, gróðurhús, grillsvæði, hjólageymslu eða bílaplan. Garðurinn hlaut verðlaun árið 2008 en hann þótti þá einstaklega vel heppnaður nýr garður og er gaman til þess að vita að því góða starfi hefur verið haldið áfram af mikilli list.

Eigendur Dalsbrúnar 11, Árni Helgason og Elísa Símonardóttir, hljóta verðlaun fyrir sérstaklega fallegan nýlegan garð. Þó garðurinn sé ekki sérlega stór er rýmið nýtt hugvitsamlega, bæði hvað gróður varðar en einnig þegar kemur að stéttum og pöllum. Allt í garðinum er unnið af einskárri natnir og hugviti enda eru eigendur mikið hagleiksfólk. Gróðurvalið í garðinum er fjölbreytt stílhrein blanda af runnum og fjölæringum. Garðurinn sýnir svart á hvítu að hægt er að gera garða ótrúlega aðlaðandi á furðu skömmum tíma í kringum nýbyggingar. Gaman verður að fylgjast með garðinum á næstu árum þegar gróðurinn verður orðinn stærri og eldri.

Það er gaman að sjá hversu mikinn metnað fjölmargir garðeigendur  leggja  í garða sína enda er gróska og fallegir garðar eitt af aðalsmerkjum Hveragerðisbæjar. 

Dalsbrún 6, Árni Helgason og Elísa Símonardóttir ásamt Bryndís formanni Umhverfisnefndar og Kristínu garðyrkjufulltrúa
Bláskógar 11, Þorsteinn Guðmundsson og Hrói Leví Eco
Valsheiði 6, Ingibjörg Sverrisdóttir og Óttar Baldursson

Facebook ummæli