Hveragerðisbær auglýsir til leigu húsnæðið að Breiðumörk 21 „Hveraportið“. Um er að ræða langtímaleigu með hefðbundnum uppsagnarfresti.

Húsnæðið er 252 m2 og skiptist það í tvö góð rými með gluggum út að götu og tvö rými bakatil, gluggalaus. Húsið stendur við aðalgötu Hveragerðisbæjar með góð bílastæði og timburpall sem gefur fjölbreytt tækifæri til nýtingar. Húsnæðið leigist í því ástandi sem það er.

Horft verður til þess að starfsemi sem fyrirhuguð er í húsinu lífgi upp á bæjarbraginn og nýtist sem flestum.

Umsækjendur skili umsóknum til Hveragerðisbæjar fyrir 1. febrúar 2021 þar sem gerð skal grein fyrir eðli þeirrar starfsemi sem fyrirhuguð er og tilboð gert í leigu fyrir húsið. Bæjarráð mun horfa annars vegar til tilboðs í leigu og hins vegar til þeirrar starfsemi sem fyrirhuguð er við val á leigutaka.

Nánari upplýsingar gefur bæjarstjóri, Aldís Hafsteinsdóttir, í síma 483-4000, aldis@hveragerdi.is

Mynd: hveragerdi.is

Facebook ummæli