Björgvin Karl Guðmundsson hefur tryggt sér sæti á Heimsleikana í Crossfit sem fram fara í Bandaríkjunum í lok júlí. Hann mun keppa fyrir framan stóran hóp áhorfenda á ný eftir að hafa æft og keppt meira og minna einn síðasta árið í kjallaranum hjá Crossfit Hengill í Hveragerði. Björgvin ætlar sér ekkert annað en sigur á heimsleikunum en þetta er í áttunda sinn sem hann tekur þátt. Við getum fylgst með undirbúningnum á Instagram síðu hans hér.

Facebook ummæli