Íslands- og bikarmeistarar Hamars í blaki tóku á móti Aftureldingu í sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu.
Hamarsmenn mættu vel stemmdir til leiks og áttu gestirnir afar erfitt uppdráttar í leiknum. Í öllum hrinum náði hamar forystu strax í upphafi og hélt henni út hrinuna. Fór svo að Hamar vann auðveldan sigur, 25 – 18, 25 – 14 og 25 – 20.
Maður leiksins: Hafsteinn Valdimarsson, fyrirliði Hamars.
Stigahæstir: Wiktor Mielazarek og Jakub Madeij Hamri og Sigþór Helgason UMFA, allir með 11 stig. 
Flestar blokkir:Hafsteinn Valdimarsson, Jakub Madej og Tomek Leik Hamri, allir með 2 blokkir hver.

Afturelding reynir að blokka Wiktor

Facebook ummæli