Anna Guðrún Halldórsdóttir úr Lyftingafélaginu Hengli í Hveragerði, setti hvorki meira né minna en 12 Íslandsmet á Haustmóti Lyftingasambands Íslands í ólympískum lyftingum sem fram fór í lok september á Selfossi.

Anna Guðrún setti Íslandsmet í öllum lyftum í -87 kg flokki, í flokkum Masters 35, Masters 40, Masters 45 og Masters 50. Hún endaði í 50 kg í snörun, 68 kg í jafnhendingu og 118 kg í samanlögðu.

Nánari úrslit úr mótinu má finna hér.

Facebook ummæli