Það verður mikið um að vera í Lystigarðinum við Fossflöt í Hveragerði um helgina þegar listafólk stígur á svið á nýju glæsilegu sviði sem vígt verður 17. júní. Miðarnir sem voru seldir í forsölunni í Hveragerði seldust strax upp og er greinilegt að fólk er meira en til í að mæta loksins aftur á tónleika. Eftir allskonar zoom og vefviðburði verður kærkomið að hlusta á og sjá allt hæfileikaríka tónlistafólkið okkar í eigin persónu.
Menningarfélag Suðurlands kynnir með miklu stolti:
Allt í Blóma 2021
Útitónleikar í Lystigarðinum í Hveragerði dagana 18. og 19. júní.
Þar koma fram eftirtaldir flytjendur ásamt fyrirtaks hljómsveit:
Föstudagskvöld:
Bassadætur (Unnur Birna & Dagný Halla)
Valgeir Guðjónsson
Hreimur Örn Heimisson
Laugardagskvöld:
Lay Low
Stefanía Svavarsdóttir
Magnús Þór
Stefán Hilmarsson
Hljómsveitina skipa þeir Pétur Valgarð, Vignir Þór Stefánsson, Óskar Þormarsson og Sigurgeir Skafti.
Hægt er að kaupa helgarpassa á bæði kvöldin, en einnig fást miðar á hvort kvöldið fyrir sig.
Svæðið opnar kl. 19 bæði kvöld og tónleikarnir hefjast kl. 20.
Hlökkum til að sjá ykkur í menningar- og matarkistu Sunnlendinga, Hveragerði, dagana 18. -19. júní.
Miðasala er á tix.is.

Facebook ummæli