Í dag var merkilegur dagur í knattspyrnusögu Hamars í Hveragerði. Nýstofnað kvennalið meistaraflokks spilaði fyrsta mótsleik í sögu félagsins. Í tilefni þess slepptu Hvergerðingar dúfum sem tóku flugið í kringum völlinn. Stelpurnar mættu sterku liði ÍA í mjólkurbikarkeppninni. ÍA tók strax tveggja marka forystu og barðist Hamar vel í fyrri hálfleik og áttu góða spretti. Seinni hálfleikur var ekki eins kröftugur og fóru lokatölur 0-8 fyrir gestunum. Hvergerðingar fjölmenntu á völlinn og það verður gaman að fá að fylgjast með þessu efnilega liði í sumar. ÁFRAM HAMAR!!
Á Hveragerði myndabær má sjá myndir úr mótinu.
Facebook ummæli