Á sunnudaginn kemur klukkan 14:00 í íþróttahúsinu í Hveragerði hefur Harmar aftur leik í Mizunodeild karla í blaki.
Liðið var ásamt HK úr Kópavogi í efsta sæti deildarinnar áður en sóvarnarlög settu stopp á deildarkeppnina en liðin höfðu unnið báða leiki sína 3-0 og því með fullt hús stiga.
Í leiknum mun nýjasti leikmaður Hamars, Wiktor Mielczarek, þreyta fumraun sýna með liðinu en hann gekk til liðs við félagið rétt áður en keppni á Íslandsmótinu var stöðvuð.Wiktor, sem er 23 ára, er þrátt fyrir ungan aldur með mikla keppnisreynslu í blaki. Hann hóf ferilinn í inniblaki en setti nýlega áherslu á strandblak í heimalandinu þar sem hann var á meðal þeirra bestu og m.a. valinn sóknarmaður ársins á síðasta tímabili.
Hamarsmenn stefna hátt á sýnu fyrsta tímabili í úrvalsdeildinni og verður áhugavert að sjá hvernig þeir koma til leiks á sunnudag.




Facebook ummæli