Í lok nóvember fengu Hvergerðingar dagatal sent heim frá rafhjólaklúbbnum Skjaldbökunum. Í dagatalinu má finna helstu hátíðisdaga ásamt skipulagsdögum og öðrum viðburðum tengdum Hveragerði.

Einhverjum afmælisbörnum maímánaðar brá í brún þegar þeir sáu að maí 2021 var víst styttri en gengur og gerist og sáu sum fram á að missa af afmælisveislu, meðan önnur voru mjög sátt við að vera enn árinu yngri.

Skjaldbökurnar biðjast velvirðingar á þessum mistökum og vilja koma því á framfæri að nú er límmiði farin í dreifingu til bæjarbúa sem hægt er að líma yfir maí mánuð.

Facebook ummæli