Í morgun var lítið mál fyrir marga foreldra að vekja börnin sín, þar sem 1. desember er runninn upp, með öllum sínum súkkulaðidagatölum sem lokka gríslingana fram úr rúminu. Og eftir tæpar tvær vikur verður heldur ekkert mál að koma þeim líka snemma í bólið þar sem jólasveinarnir byrja að klöngrast niður úr Reykjafjalli einn af öðrum.

Verslanir bjóða nú upp á allskonar dagatöl við allra hæfi. Meira segja gæludýrin verða ekki út undan og geta fengið jóladagatöl með allskonar gúmmulaði. Vinsælust meðal mannfólksins eru nú enn væntanlega súkkulaði- og önnur sælgætisdagatöl, snyrtivörudagatöl, ostadagatöl og fleira í þeim dúr. Hægt er að kaupa ódýr pappadagatöl og allt uppí rándýr skartgripadagatöl og á Porsche þar víst vinninginn í ár, en dagatalið þeirra kostar 1 milljón dollara. Mörgum finnst tilheyra að búa til sín eigin samverudagatöl eða pakkadagatöl fyrir desembermánuð og fylla þau af allskonar óvæntum gjöfum, leikföngum, sokkum, jólabjórum eða einhverju sem þeim finnst við hæfi til að gleðja ástvini sína.

Sigurður Grétar Gunnarsson 10 ára, smíðaði sjálfur þetta flotta jóladagatal handa mömmu sinni, Mattheu Sigurðardóttur sem sagðist ekki vilja nammidagatal í ár. Siggi útbjó því þetta fína hreyfidagatal úr timbri og skreytti það svo með ljúfum skilaboðum að utan. Á bak við hvern miða með dagsetningunni á, má svo sjá æfingu dagsins. Mamma hans er búin að rífa fyrsta miðann af og lesa það sem stendur aftan á honum: 15 magaæfingar takk fyrir.

Þegar Krumminn hafði samband var hún sjálf ekki byrjuð á æfingunum en Siggi var hinsvegar búinn með þær allar 15 og sýna henni hvernig ætti að gera þetta.

Facebook ummæli