74 nemendur í 7.-10. bekk í Grunnskólanum í Hveragerði, og 8 starfsmenn, eru í sóttkví eftir að kennari greindist með COVID-19 í gær. Kennarinn var nýkominn í sóttkví þegar hann greindist. Nemendur og kennarar verða í sóttkví fram á þriðjudag í næstu viku.
Sævar Þór Helgason skólastjóri segir í samtali við fréttastofu RÚV að hann viti ekki til þess að neinn þeirra sem er í sóttkví hafi fundið fyrir einkennum.
Einhvers konar fjarkennslu verður komið á fyrir þau sem ekki verða í skólanum næstu daga. „Við vorum auðvitað einn af fyrstu skólunum sem lentu í því að missa stóran hóp í sóttkví, upp í 300 manns. Þannig þetta er ekkert nýtt fyrir okkur. En þessi vinna rakningateymisins er orðin svo smurð og þetta er allt mjög skýrt. En auðvitað er leiðinlegt að vera nýbúin að taka niður grímurnar og skólastarfið komið í eðlilegt horf, að lenda þá í þessu,“ segir hann.
Frétt af www.ruv.is


Facebook ummæli