Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) í samvinnu við Arkitektafélag Íslands (AÍ) efndi í janúar 2020  til opinnar hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu Heilsustofnunar (HNLFÍ) og framtíðarskipulag á landi NLFÍ í Hveragerði þar sem starfsemi Heilsustofnunar er rekin. Leitast var eftir tillögum að heildarskipulagi sem innifelur m.a. endurnýjun á núverandi húsnæði Heilsustofnunar í áföngum, að hluta til eða öllu leyti. Dómnefndarfulltrúar voru tilnefndir af verkkaupa og Arkitektafélagi Íslands og hófust dómstörf í júní 2020 eftir að skilafresti tillagna lauk.

Innsendar tillögur voru 12 og reyndust 10 uppfylla skilyrði samkeppnislýsingarinnar og voru teknar til dóms.

Verðlaunaathöfnin hefst kl. 15:00, föstudaginn 3. júlí í Kapellunni á Heilsustofnun. Streymt verður frá athöfninni og er slóðin https://us02web.zoom.us/j/85980266112  – athugið að slóðina má einnig finna á heilsustofnun.isai.is og nlfi.is

Facebook ummæli