Nýverið var lýsing endurhönnuð og endurnýjuð á lóð leikskólans Óskalands. Eldri lýsing hafði verið óbreytt frá byggingu leikskólans og var orðin úr sér gengin og ófullnægjandi. Að auki var notast við lampa með kvikasilfursperum sem bannað er að framleiða í dag og því ekki hægt að gera við það sem bilaði.

Til að færa lýsinguna til nútímans var ákveðið að endurnýja lýsinguna með LED (e. Light Emiting Diode) ljósum og var Kristín Ósk Þórðardóttir rafmagnsverkfræðingur og Sérfræðingur í ljósahönnun hjá verkfræðistofunni Lotu fengin til að útfæra nýju lýsinguna. Ákveðið var að notast við núverandi staura en uppfæra ljósin sjálf. Fyrir valinu urðu Plurio O LED 60W lampar frá Jóhanni Rönning ehf. Þessir lampar lýsa °360 og eru bjartir og hlýlegir án þess að valda glýju.

Skemmst er frá því að segja að nýja lýsingin hefur komið einstaklega vel út. Börnin, starfsmenn og foreldrar eru öll sammála um að munurinn sé eins og dagur og nótt (í orðsins fyllstu), sérstaklega í skammdeginu þegar það er oft nánast myrkur á útivistartímum. Það er ekki bara að lýsingin hafi verið stórbætt heldur verður við það heilmikill orkusparnaður þegar skipt er yfir í LED lýsingu en þar getur munað meira en 50% sem er gott fyrir umhverfið og fjárhaginn.

Leiksvæði yngstu barnanna vestan megin við húsið naut nýju lýsingarinnar þó ekki í sama mæli og afgangurinn af lóðinni og hefur því nú í tilraunaskyni verið skipt um lampa á tveimur ljósastaurum við Finnmörkina en þeir standa þétt við leiksvæði yngstu barnanna. Þar sem þessi ljós lýsa allan hringinn þá hefur lýsingin þegar batnað veruleg á svæðinu.   Væntanlega verða síðan svipaðar lýsingalausnir settar upp á bílastæði leikskólans og á öðrum stöðum sem þarfnast mikillar lýsingar. 

Ljóst er að nú fara í hönd nýir tímar þegar kemur að umhverfis og götulýsingu. Ný tækni er að ryðja sér til rúms og sú gamla mun hverfa nokkuð hratt þar sem hún er óumhverfisvæn og því ekki hægt að viðhalda henni til lengri tíma. Með þessum hröðu breytingum koma spennandi lausnir eins og sést á nýju lýsingunni við leikskólann Óskaland. Með tíð og tíma má vænta þess að öll umhverfis og götulýsing í Hveragerði verði LED-vædd. Ljóst er að þó að kostnaður verði nokkur til skamms tíma en í staðinn mun orku og viðhaldskostnaður lækka til muna til lengri tíma og því ber að fagna.

Höskuldur Þorbjarnarson 
Umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar

Facebook ummæli