Reynir Þór Garðarsson og Brynja Sif Sigurjónsdóttir eru fyrstu íbúarnir í hinu nýja hverfi hér í Hveragerði,  Kambalandinu.  Forseti bæjarstjórnar og bæjarstjóri heimsóttu þau á flutningsdaginn og færðu þeim blóm sem vonandi mun dafna vel rétt eins og þau og aðrir  íbúar Kambalands sem flytja munu inn í íbúðir sínar eina af annarri á næstu dögum og vikum.  Óskum við þeim öllum velfarnaðar í hinu nýja hverfi. 

Í fyrsta áfanga Kambalands er gert ráð fyrir 35 einbýlishúsum, 59 íbúðum í raðhúsum og 60 íbúðum í fjölbýlishúsum.  Stórum meirihluta lóða fyrir þessar íbúðir hefur þegar verið úthlutað en í sumar mun þó verða úthlutað lóðum fyrir 19 einbýlishús og snemma árs 2022 verður úthlutað lóðum fyrir stórt raðhús og fleiri fjölbýlishús. 

Áhugi bæði einstaklinga og fyrirtækja á þessum reit er mjög mikill og það er ánægjulegt að sjá hversu vel og hratt uppbygging í Kambalandi gengur.  Rétt er að geta þess að Kambaland er 30,4 ha að stærð og þessi fyrsti áfangi er einungis fyrsta skrefið að stórfelldri uppbyggingu á þessum einstaka útsýnisreit á Suðurlandi. 

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri 

Reynir Þór og Brynja ásamt Eyþóri, forseta bæjarstjórnar í nýja húsinu.

Facebook ummæli