Sigurganga Hamars í blaki karla hélt áfram í kvöld þegar liðið heimsótti Álftanes í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins.
Álftanes veitti, þrátt fyrir að hafa sýnt flotta takta í Hveragerði þegar liðin áttust við í deildinni þar í síðasta mánuði, litla mótspyrnu.

Hamarsmenn unnu allar hrinur örugglega 25-13, 25-10 og 25-19 og tryggðu sér með því sæti á bikarúrslitahelgi Blaksambands Íslands og Kjörís.

Á úrslitahelginni er leikið með “Final Four” fyrirkomulagi þar sem undanúrslit karla og kvenna fara fram laugardaginn 13. mars og úrslitin fara svo fram 14. mars.

Leikurinn í kvöld var fyrsti leikurinn í undanúrslitum og því ekki ljóst hverjum Hamarsmenn mæta í undanúrslitunum en úrslitaleikurinn fer fram 14. mars kl. 15:30 þar sem Hamarsmenn ætla sér klárlega að vera inni á vellinum.

Hamarsmenn fagna sigri á Alftanesi í febrúar

Facebook ummæli